HVER GÆTIR ÞINNA HAGSMUNA?

HVER GÆTIR ÞINNA HAGSMUNA?

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) er stéttarfélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Félagið sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði.  Það vinnur að bættum kjörum félagsmanna, gætir réttinda þeirra og er óháð starfsvettvangi, vinnuveitanda eða ráðningarformi.

Alls eru greiðandi félagsmenn nú tæplega 2.000. Um 55% starfar á almennum vinnumarkaði en 45% hjá hinu opinbera.

KVH hefur það að markmiði að félagsmenn þess njóti bestu mögulegrar þjónustu og hagsmunagæslu á hverjum tíma. KVH er aðili að Bandalagi háskólamanna.

Aðsetur KVH og BHM er að Borgartúni 6, Reykjavík.

Á skrifstofu KVH er svarað í síma og veitt ráðgjöf er hér segir:

Mánudaga – fimmtudaga 13:00-16:00.

Föstudaga 9:00-12:00.

Fyrir almennar heimsóknir er hægt að bóka ráðgjöf og fjarfundi í síma 595-5140 eða: kvh@bhm.is

Efst á baugi


Félagsmenn sem eru tímabundið atvinnuleitendur

Stjórn KVH hefur ákveðið að greiða framlag fyrir atvinnulausa félagsmenn í sameiginlega sjóði BHM.  Þetta á við þá félagsmenn sem eru atvinnuleitendur en greiða sjálfir félagsgjöld til KVH, gegnum Vinnumálastofnun.  Sjóðirnir sem um ræðir eru Sjúkrasjóður BHM, Styrktarsjóður BHM, Starfsmenntunarsjóður BHM og Orlofssjóður BHM. Með þessu móti viðhalda félagsmenn réttindum sínum í sjóðunum, meðan þeir eru tímabundið í atvinnuleit og greiða félagsgjöld.

Sjóðfélagar í Styrktarsjóði eða Sjúkrasjóði BHM athugið!

Umsóknir og gögn sem miðast við almanaksárið 2013 þurfa að berast/vera póstlögð í síðasta lagi 9. desember næstkomandi.  Sama gildir um gögn vegna umsókna sem þegar hafa borist.

Styrkumsóknir eru afgreiddar í hverjum mánuði. Umsóknir og fullnægjandi gögn sem berast í síðasta lagi 9. hvers mánaðar eru greiddar út 24.-26. sama mánaðar.

Umsóknir eru sendar inn með rafrænum hætti í gegnum heimasíðu. Nálgast má úthlutunarreglur á heimasvæði sjóðanna.

Nánari upplýsingar gefa fulltrúar sjóðanna:

Ingunn Þorsteinsdóttir vegna Styrktarsjóðs (opinberir starfsmenn): Sími 595-5111

Gissur Kolbeinsson vegna Sjúkrasjóðs (starfsmenn á almennum markaði): Sími 595-5120

Launaþróun og kaupmáttur

Kaupmáttur launa féll mikið í kjölfar hrunsins. Mældur út frá launavístölu er hann nú svipaður og hann var í lok árs 2005. Kaupmátturinn var hæstur um mitt ár 2007 en féll svo um u.þ.b. 16% fram til vorsins 2010. Síðan hefur kaupmáttaraukning verið jöfn og stígandi með rúmlega 2% hraða, sem er eilítið minni aukning og varð á árunum eftir 2002.

Sé litið á þróun síðustu tveggja ára sést greinilega að töluverðar launahækkanir á þessu tímabili hafa ekki náð að auka kaupmáttinn að neinu marki. Þannig hækkuðu laun um 19,5% frá upphafi ársins 2011 fram til júní 2013, en kaupmáttur einungis um 5%.  (Heimild: Hagstofa Íslands og Hagsjá LÍ)

Atvinnuleitendum fækkar

Samkvæmt upplýsingum Vinnumálastofnunar nam atvinnuleysi  í júní síðast liðnum  3,9% á landinu öllu og hefur það ekki verið minna síðan fyrir hrun eða í árslok 2008.   Atvinnuleysi meðal karla var 3,3%, en 4,6% meðal kvenna.  Á höfuðborgarsvæðinu reyndist atvinnuleysi karla vera 3,9%, en kvenna 5,2%.

Þegar horft er til menntunar  þá er um fimmtungur atvinnuleitenda eða 21% með háskólanám eða sérskólanám á háskólastigi.  Ekki liggja fyrir tölur um fjölda viðskiptafræðinga og hagfræðinga sem eru atvinnulausir, enda dreifast þeir á nokkur stéttarfélög, auk þess sem einhver hluti þeirra er utan félaga.  Hins vegar greiddu 12 atvinnuleitendur félagsgjöld til KVH í júní s.l. og er það rétt rúmlega  1 % af greiðandi félagsmönnum.

Forsíða

Félagsaðild

Í boði er meðal annars:

  • Fæðingarstyrkir og sjúkradagpeningar
  • Starfs- og endurmenntunarstyrkir
  • Sumarbústaðir og orlofshúsnæði, innanlands og erlendis

Námsmannaaðild

Námsmenn í viðskiptafræði eða hagfræði á háskólastigi, sem lokið hafa a.m.k. 60 einingum (ECTS) geta sótt um námsmannaaðild að KVH (NKVH). Slík aðild felur m.a. í sér:

  • Aðgang að upplýsingum og leiðbeiningum félagsins er snerta störf og kjör á vinnumarkaði
  • Aðstoð við gerð ráðningarsamninga
  • Aðgang að námskeiðum/málstofum KVH á ári hverju. Efni námskeiðanna eru fjölbreytt og höfða til námsmanna
  • Gjöf frá KVH þegar að námi lýkur