Kaupmáttur launa féll mikið í kjölfar hrunsins. Mældur út frá launavístölu er hann nú svipaður og hann var í lok árs 2005. Kaupmátturinn var hæstur um mitt ár 2007 en féll svo um u.þ.b. 16% fram til vorsins 2010. Síðan hefur kaupmáttaraukning verið jöfn og stígandi með rúmlega 2% hraða, sem er eilítið minni aukning og varð á árunum eftir 2002.

Sé litið á þróun síðustu tveggja ára sést greinilega að töluverðar launahækkanir á þessu tímabili hafa ekki náð að auka kaupmáttinn að neinu marki. Þannig hækkuðu laun um 19,5% frá upphafi ársins 2011 fram til júní 2013, en kaupmáttur einungis um 5%.  (Heimild: Hagstofa Íslands og Hagsjá LÍ)

Share This