Ágæti félagi

Kjarafélagi viðskiptafræðinga og hagfræðinga vekur athygli á niðurstöðu nýfallins Hæstaréttardóms varðandi vinnutíma á ferðalögum. Niðurstaða dóms Hæstaréttar er skýr og tekur endanlega af öll tvímæli um það að ferðatími sé vinnutími skv. lögum. Áhrif dómsins á starfsmenn sem þurfa að ferðast mikið vegna vinnu  gætu verið veruleg.

Félagsfólk sem kann að eiga kröfu á hendur laungreiðenda vegna þessa er hvatt til að skoða áhrif þessa dóms á sína stöðu og leita til síns laungreiðanda ef ástæða er til að ætla að það eigi kröfu á hendur honum vegna ferða erlendis. Þá er öllum bent á að huga að áhrifum þess dóms á ferðalög á vegum vinnuveitanda til framtíðar litið.

Ef þörf er á aðstoð eða ráðgjöf vegna þessa máls er ykkur bent á að setja ykkur í þjónustuskrifstofu félagsins í síma 595-5140 eða með tölvupósti á félagið: kvh@kjarafelag.is

Share This