Leiðbeiningar

Upplýsingar um félagsgjöld og greiðslur í sjóði BHM

Félagsgjöld sem dregin eru mánaðarlega af launum félagsmanna og vinnuveitandi gerir skil:

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga, kt. 450588-2029 (stéttarfélagsnúmer 671), félagsgjöldin eru 0,6% af heildarlaunum.

Sjá hér neðar hvernig á að ganga frá skilagreinum eða nánar á heimasíðu BHM

Mótframlag í sjóði

Almennur vinnumarkaður:
  • Sjúkrasjóður BHM 1% af heildarlaunum
  • Orlofssjóður BHM 0,25% af heildarlaunum
  • Starfsmenntunarsjóður BHM 0,22% af heildarlaunum
  • Vísindasjóður KVH 1,5% af dagvinnulaunum (valkvæður sjóður)
  • Starfsþróunarsetur háskólamanna 0,7% af heildarlaunum (valkvæður sjóður)
Sveitarfélög:
  • Styrktarsjóður BHM 0,75% af heildarlaunum
  • Orlofssjóður BHM 0,25% af heildarlaunum
  • Starfsmenntunarsjóður BHM 0,22% af heildarlaunum
  • Vísindasjóður KVH 1,5% af dagvinnulaunum
  • Starfsþróunarsetur háskólamanna 0,7% af heildarlaunum
Reykjavíkurborg:

Ríki og sjálfseignastofnanir sem byggja á ríkiskjarasamningi:
  • Styrktarsjóður BHM 0,75% af heildarlaunum
  • Orlofssjóður BHM 0,25% af heildarlaunum
  • Starfsmenntunarsjóður BHM 0,22% af heildarlaunum
  • Starfsþróunarsetur háskólamanna 0,7% af heildarlaunum
  • Sérstakt iðgjald skv. bókun I   0,1% af heildarlaunum

Sjálfstætt starfandi:
  • Sjúkrasjóður BHM 1% af heildarlaunum
  • Orlofssjóður BHM 0,25% af heildarlaunum (valkvæður sjóður)
  • Starfsmenntunarsjóður BHM 0,22% af heildarlaunum (valkvæður sjóður)
  • Vísindasjóður KVH 1,5% af dagvinnulaunum (valkvæður sjóður)
  • Starfsþróunarsetur háskólamanna 0,7% af heildarlaunum (valkvæður sjóður)

Iðgjöld til Starfsendurhæfingarsjóðs, VIRK, eru 0,1% af heildarlaunum og eru innheimt af viðkomandi lífeyrissjóði, sjá nánar á heimasíðu Virk.

Hvernig á að ganga frá skilagreinum?

Iðgjaldaskil

Launagreiðendum ber að senda skilagreinar fyrir hvern mánuð með sundurliðun á öllum iðgjöldum til sjóða og stéttarfélaga fyrir hvern launþega til BHM, fyrir 10. hvers mánaðar. Nauðsynlegt er að rétt númer og heiti stéttarfélags komi fram á hverri skilagrein.

Krafa myndast í netbanka launagreiðanda þegar skilagrein hefur borist og hún hefur verið bókuð. Eigi greiðsla sér ekki stað fyrir eindaga eru reiknaðir dráttarvextir frá gjalddaga til greiðsludags.
Gjalddagi er 15. dagur næsta mánaðar eftir útborgunarmánuð en eindagi síðasti virki dagur gjalddaga mánaðar.

Bankareikningur BHM v/iðgjalda 0336-26-50000 kt. 630387-2569.

Skil úr launakerfi
  • Senda má skilagrein rafrænt með XML (sjá skilagrein.is) eða með SAL færslu á netfangið skilagreinar@bhm.is. Launþeginn verður að vera merktur með réttu stéttarfélagsnúmeri (671), réttum innheimtuaðila (BHM 2999) og gildum færslutegundum svo hægt sé að senda rafrænt.
  • BHM úthlutar ekki notendanafni/lykilorði, launagreiðandi getur stofnað sitt eigið.
Rafræn iðgjaldaskil
  • Rafrænt skilagreinaform BHM.
  • Sjálfstætt starfandi og smærri fyrirtæki á almenna vinnumarkaðnum sem ekki skila iðgjöldum inn beint úr launakerfi, geta skilað iðgjöldunum inn í gegnum ofangreint rafrænt skilagreinaform. Formið er einfalt í notkun og birtist útreikningur sjálfkrafa. Notendur þurfa að ákveða í hvaða sjóði þeir ætla ekki greiða, með því að haka við þá sjóði sem þeir vilja sleppa. Athugið að færa þarf inn upphæð í báða launadálka ef félagsgjöldin eru reiknuð af dagvinnulaunum, þó svo að um sömu launaupphæð er að ræða. Einnig er nauðsynlegt að fara vel yfir upplýsingarnar áður en ýtt er á “senda”
Tölvupóstur, bréfpóstur og fax
  • Póstfang fyrir skilagreinar sem berast í bréfpósti:  Bandalag háskólamanna v/BIB, Borgartúni 6, 105 Reykjavík
  • Faxnúmer: 595 5101

Share This