HVER GÆTIR ÞINNA HAGSMUNA?

HVER GÆTIR ÞINNA HAGSMUNA?

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) er stéttarfélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Félagið sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði.  Það vinnur að bættum kjörum félagsmanna, gætir réttinda þeirra og er óháð starfsvettvangi, vinnuveitanda eða ráðningarformi.

Alls eru greiðandi félagsmenn nú tæplega 2.000. Um 55% starfar á almennum vinnumarkaði en 45% hjá hinu opinbera.

KVH hefur það að markmiði að félagsmenn þess njóti bestu mögulegrar þjónustu og hagsmunagæslu á hverjum tíma. KVH er aðili að Bandalagi háskólamanna.

Aðsetur KVH og BHM er að Borgartúni 6, Reykjavík.

Á skrifstofu KVH er svarað í síma og veitt ráðgjöf er hér segir:

Mánudaga – fimmtudaga 13:00-16:00.

Föstudaga 9:00-12:00.

Fyrir almennar heimsóknir er hægt að bóka ráðgjöf og fjarfundi í síma 595-5140 eða: kvh@bhm.is

Efst á baugi


Kjarakönnun BHM – taktu þátt !

Bandalag háskólamanna gengst nú fyrir rafrænni kjarakönnun sem ætlað er að gefa yfirgripsmikla mynd af kjaramálum félagsmanna. Markmið könnunarinnar, sem framkvæmd verður árlega, eru að:

  • veita yfirsýn yfir launakjör háskólamenntaðra og fylgjast með þróun launa þeirra, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði.
  • leggja grunn að upplýsingaveitu til félagsmanna um launakjör og launasamanburð
  • veita aðildarfélögunum mikilvægar upplýsingar til að byggja á við gerð samninga um kaup og kjör.

Félagsmenn KVH eru eindregið hvattir til að taka þátt í könnuninni og leggja þannig sitt af mörkum til að markmið hennar nái fram að ganga.

Könnunin er um 35 spurningar, sem flestum er auðvelt að svara en nokkrar heimta að upplýsingar um laun ársins 2012 og laun fyrir febrúar 2013 séu innan seilingar þegar svarað er.

Rannsóknarfyrirtækið Maskína sér um framkvæmdina. Farið verður með öll svör sem trúnaðarmál og þau ekki rekjanleg til einstaklinga.

Aðalfundur KVH

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga heldur aðalfund sinn þann 22. mars, kl. 12:00, að Borgartúni 6 (fundarsal á 3. hæð).

 

 

Dagskrá er þannig,  samkvæmt lögum félagsins:

  • Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári
  • Reikningsskil
  • Skýrslur og tillögur nefnda
  • Tillögur félagsstjórnar
  • Kosning í embætti stjórnar og önnur trúnaðarstörf
  • Kosninga skoðunarmanna
  • Lagabreytingar
  • Ákvörðun félagsgjalda
  • Önnur mál

 

Boðið verður uppá léttar veitingar.

 

Nýr framkvæmdastjóri Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga

Hallur Páll Jónsson hefur verið ráðinn í nýtt starf framkvæmdastjóra Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Hann hóf störf þann 1.febrúar. Hallur Páll starfaði sem mannauðsstjóri Reykjavíkurborgar árin 2007-2012. Áður var hann bæði deildarstjóri hjá stjórnsýslu -og starfsmannasviði Reykjavíkurborgar og starfsmannastjóri Félagsþjónustunnar í Reykjavík, eða á tímabilinu 1994-2007.

Hallur Páll lauk MA-gráðu í mannauðsfræðum frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands árið 2004, prófi í rekstrar- og viðskiptafræðum árið 1995, auk BA-gráðu í heimspeki, sálfræði og bókmenntum árið 1977. Auk þess hefur Hallur kennarapróf frá Kennaraskóla Íslands.

Hallur Páll sinnti ýmsum öðrum verkefnum samhliða störfum sínum hjá Reykjavíkurborg og var meðal annars formaður kjarasamninganefndar Reykjavíkurborgar um árabil.

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga býður Hall Pál velkominn til starfa.

Frá 1. febrúar 2013 er nýtt símanúmer Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga 595 5140. Stjórn KVH hvetur félagsmenn til þess að nýta þjónustu skrifstofunnar í kjara- og réttindamálum.

Hægt er að hafa samband og senda póst á netföngin kvh@bhm.is og hallur@bhm.is

Fjör á Framadögum

Framadagar eru ætlaðir háskólanemum, útskrifuðum sem og núverandi nemendum. Markmið Framadaga er að háskólanemar fái tækifæri til að kynna sér vinnumarkaðinn, fyrirtæki og fjölbreytta möguleika varðandi sumarstörf, framtíðarstörf eða verkefnavinnu. Mikil stemmning var við bás BHM sem bauð nemendum að taka þátt í könnun á því hvað þau vildu að stéttarfélög gerðu fyrir þau í framtíðinni. Þau voru einnig spurð að því hvaða laun þau vildu fá á vinnumarkaði að námi loknu. Þá tóku þau þátt í happdrætti þar sem Ipad mini var í vinning. Menn höfðu á orði að fjörið væri mikið við básinn hjá BHM.

Forsíða

Félagsaðild

Í boði er meðal annars:

  • Fæðingarstyrkir og sjúkradagpeningar
  • Starfs- og endurmenntunarstyrkir
  • Sumarbústaðir og orlofshúsnæði, innanlands og erlendis

Námsmannaaðild

Námsmenn í viðskiptafræði eða hagfræði á háskólastigi, sem lokið hafa a.m.k. 60 einingum (ECTS) geta sótt um námsmannaaðild að KVH (NKVH). Slík aðild felur m.a. í sér:

  • Aðgang að upplýsingum og leiðbeiningum félagsins er snerta störf og kjör á vinnumarkaði
  • Aðstoð við gerð ráðningarsamninga
  • Aðgang að námskeiðum/málstofum KVH á ári hverju. Efni námskeiðanna eru fjölbreytt og höfða til námsmanna
  • Gjöf frá KVH þegar að námi lýkur