HVER GÆTIR ÞINNA HAGSMUNA?

HVER GÆTIR ÞINNA HAGSMUNA?

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) er stéttarfélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Félagið sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði.  Það vinnur að bættum kjörum félagsmanna, gætir réttinda þeirra og er óháð starfsvettvangi, vinnuveitanda eða ráðningarformi.

Alls eru greiðandi félagsmenn nú tæplega 2.000. Um 55% starfar á almennum vinnumarkaði en 45% hjá hinu opinbera.

KVH hefur það að markmiði að félagsmenn þess njóti bestu mögulegrar þjónustu og hagsmunagæslu á hverjum tíma. KVH er aðili að Bandalagi háskólamanna.

Aðsetur KVH og BHM er að Borgartúni 6, Reykjavík.

Á skrifstofu KVH er svarað í síma og veitt ráðgjöf er hér segir:

Mánudaga – fimmtudaga 13:00-16:00.

Föstudaga 9:00-12:00.

Fyrir almennar heimsóknir er hægt að bóka ráðgjöf og fjarfundi í síma 595-5140 eða: kvh@bhm.is

Efst á baugi


Laun viðskipta- og hagfræðinga KVH

Kjarakönnun BHM sem framkvæmd var s.l. vor tók einnig til félagsmanna KVH.  Alls tóku 525 félagsmenn þátt í könnuninni  sem gerir um 68% svörun og telst ágætt.  Meðalheildartekjur félagsmanna KVH  í febrúar s.l. voru kr. 612 þús , en meðalgrunnlaun  kr. 518 þús.   Til samanburðar voru meðalheildartekjur BHM félaga allra um kr. 522 þús, en meðalgrunnlaun 454 þús.

Laun kynja eru sem fyrr ekki þau sömu. Meðalheildarlaun karla í KVH voru kr. 644 þús í febrúar s.l., en meðalheildarlaun kvenna kr. 589 þús. Meðalgrunnlaun karla voru kr. 531 þús, en kvenna kr. 509 þús.

Árstekjur félagsmanna KVH árið 2012 voru að meðaltali um kr. 7.222.000 (en kr. 6.312.000 hjá BHM almennt).  Þegar litið er til skiptingar félagsmanna eftir kjarasamningum, kemur í ljós að laun eru áberandi lægst hjá sveitarfélögunum  (bæði Reykjavíkurborg og Samb.ísl.sveitarfélaga), en hæst að meðaltali á almenna vinnumarkaðinum.

Þeir félagsmenn sem eru með MSc. próf eða meira hafa hærri meðallaun en þeir sem hafa BSc próf, og meðallaun hækka eftir því sem starfs- og lífaldur eykst.

Þróun launa og kaupmáttar 2005 – 2013

Hagstofan hefur birt nýjar tölur um  launaþróun eftir launþegahópum. Þar kemur m.a. fram að frá fyrsta ársfjórðungi 2005 til fyrsta ársfjórðungs 2013 hafa regluleg laun á íslenskum vinnumarkaði hækkað um 74,6%, þar af 76,8% á almennum vinnumarkaði, 69,4% hjá ríkisstarfsmönnum og 68,3% hjá starfsmönnum sveitarfélaga.

Kaupmáttur reglulegra launa yfir sama tímabil hefur aukist um 2,8%, en misjafnlega þó. Á almennum vinnumarkaði jókst kaupmáttur um 4,1%, hjá ríkisstarfsmönnum um 0,3% og hjá starfsmönnum sveitarfélaga um 0,9%.

Það einkennir kjarasamninga undanfarinna ára að meiri almennar hækkanir hafa orðið á lægstu launatöxtum. Þetta má skoða nánar á vef Hagstofu Íslands.

Atvinnuleysi á vinnumarkaði

Fróðlegt er að skoða samanburð á atvinnuleysi milli landa, en hlutfall atvinnuleysis gefur vísbendingar um ástand á vinnumarkaði  og efnahag þjóða.  Í nýjum tölum frá EUROSTAT kemur fram að meðaltals atvinnuleysi í 28 Evrópusambandsríkjum var 12,1%  nú í júlí s.l. sem þýðir að um 26,6 milljón manna var án atvinnu í þessum löndum.   Þegar sambærilegum tölum er bætt við fyrir Noreg og Ísland, kemur í ljós að hlutfall atvinnuleysis er lægst í Noregi (3,4%), Austurríki (4,8%), Þýzkalandi (5,3%) og Íslandi (5,5%), en lang hæst í Grikklandi (27,6%) og Spáni (26,3%).

Kjarakönnun BHM: niðurstöður

Í dag voru kynntar niðurstöður kjarakönnunar BHM, sem gerð var í vor og náði til félagsmanna í öllum aðildarfélögum BHM.  Könnunin var mjög yfirgripsmikil og þar er að finna miklar og gagnlegar upplýsingar fyrir félögin og félagsmenn, með hliðsjón af fjölmörgum  þáttum m.a. kyni og  staðsetningu á vinnumarkaði. Meðal-heildarlaun viðskiptafræðinga og hagfræðinga reyndust hafa verið um 612 þúsund krónur í febrúar mánuði s.l., en meðal-heildarlaun allra BHM félaga var hins vegar um 522 þúsund krónur.  Stjórn KVH mun á næstu vikum rýna þessar niðurstöður og nýta við undirbúning komandi kjarasamninga. Niðurstöður könnunarinnar og heildarskýrslu má nálgast á vefsíðu BHM.

Forsíða

Félagsaðild

Í boði er meðal annars:

  • Fæðingarstyrkir og sjúkradagpeningar
  • Starfs- og endurmenntunarstyrkir
  • Sumarbústaðir og orlofshúsnæði, innanlands og erlendis

Námsmannaaðild

Námsmenn í viðskiptafræði eða hagfræði á háskólastigi, sem lokið hafa a.m.k. 60 einingum (ECTS) geta sótt um námsmannaaðild að KVH (NKVH). Slík aðild felur m.a. í sér:

  • Aðgang að upplýsingum og leiðbeiningum félagsins er snerta störf og kjör á vinnumarkaði
  • Aðstoð við gerð ráðningarsamninga
  • Aðgang að námskeiðum/málstofum KVH á ári hverju. Efni námskeiðanna eru fjölbreytt og höfða til námsmanna
  • Gjöf frá KVH þegar að námi lýkur