KVH hefur gert samstarfssamninga við fimm námsmannafélög viðskipta- og hagfræðinga.  Þ.e. við Háskóla Íslands (Mágus og Ökonomia), við Háskólann í Reykjavík (Markaðsráð), við Háskólann á Akureyri (Reki) og við Háskólann á Bifröst (Merkúr).

Námsmenn í viðskiptafræði eða hagfræði á háskólastigi, sem lokið hafa a.m.k. 60 einingum (ECTS) geta sótt um námsmannaaðild að KVH. Slík aðild felur m.a. í sér aðgang að leiðbeiningum félagsins er snerta störf og launakjör. Þá mun KVH bjóða námsmönnum, sem eiga aðild að félaginu, námskeið til undirbúnings því að sækja um störf og hefja fulla þátttöku á vinnumarkaði, þegar námi lýkur.

Námsmenn greiða ekki gjöld til félagsins meðan þeir eru í námi nema þeir þiggi laun á tímabilinu og séu jafnframt í störfum þar sem menntun þeirra nýtist. Námsmannaaðild getur varað allt að fjórum árum.

Share This