Hér fyrir neðan eru auglýsingar fyrir næstu tvö námskeið, Skrif fyrir vefinn sem verður rafrænt næsta fimmtudag (25. Nóv.) og Samskipti á vinnustað sem verður haldinn rafrænt 30. nóvember.

Við minnum á lokaða námskeiðasíðu BHM þar sem úrval námskeiða um tæknileg málefni er að finna og fyrirlestra frá sérfræðingum BHM um t.d. Jafnrétti á vinnustað, sjóði BHM, Starfsþróunarsetur og réttindi á vinnumarkaði.

NÝTT INN:  Á lokuðu námskeiðasíðuna bættust nýlega við tvö námskeið frá Tækninám.is:

  • Windows 11
  • Office 365 fyrir Apple tölvur

 

Örfá pláss eru enn laus á Vinnuvernd 101 hjá Vinnuverndarskólanum, hægt er að taka námskeiðið á íslensku eða ensku, skráning fer fram á þessum hlekk.

Vegna nýrra Covid-tengdra samkomutakmarkana þurfti að fresta tveimur námskeiðum sem voru á dagskrá í nóvember og desember fram yfir áramót, það eru námskeiðin Framkoma og ræðumennska og Ráðstefnustjórn og tækifærisræður sem María Ellingsen mun kenna í sal í Borgartúni 6.

 

Samskipti á vinnustað
Þriðjudaginn 30. nóv. kl. 13:00-16:00

Rakel Heiðmarsdóttir, sálfræðingur, leiðir námskeið um samskipti á vinnustöðum fyrir félagsmenn aðildarfélaga BHM.

Við eigum stöðugt í samskiptum við annað fólk – heima, í vinnunni og í frítímanum. En hver er okkar dæmigerði samskiptastíll? Er hann „árásargjarn“, „passífur“, „passífur og árásargjarn“ eða „einlægur og lausnamiðaður“? Eða kannski blanda af öllum þessum?

Hver samskiptastíll er kynntur myndrænt og fjallað er um helstu einkenni hvers og eins, kosti og galla. Sérstök áhersla er á fyrirmyndarsamskiptastílinn, þau tækifæri sem hann felur í sér og hvernig hann nýtist til að fyrirbyggja og leysa úr.

Takmarkað pláss er á námskeiðið og hefst skráning miðvikudaginn 24. nóvember kl. 12:00 á þessum hlekk.

Upptaka verður aðgengileg á lokaðri námskeiðasíðu BHM í viku í kjölfarið.

 

Skrif fyrir vefinn

Fimmtudaginn 25. nóvember kl. 13:00-14:00 á Teams

Fyrirlestur ætlaður þeim sem skrifa fyrir vefi og þurfa að skrifa aðgengilegan texta sem nær til fólks.

Talað verður um rödd og tón, notendamiðaðan og auðlæsan texta auk þess sem fjallað verður um aðgengismál.

Berglind Ósk Bergsdóttir hefur starfað sem notendamiðaður textasmiður síðan 2018 en starfaði áður sem framenda- og app forritari hjá Kolibri, QuizUp og gogoyoko.

Fyrirlesturinn verður haldinn með fjarfundabúnaði á Teams. Smelltu á þennan hlekk til að skrá þig.

Upptaka af fyrirlestrinum verður aðgengileg á Námskeiðasíðu BHM í viku í kjölfarið.

Share This