Kjarasamningur KVH við Samband íslenskra sveitarfélaga, sem undirritaður var þ. 30. mars sl., var samþykktur í atkvæðagreiðslu þeirra félagamanna sem undir hann heyra og lauk í síðustu viku.

Svarhlutfall var tæp 70%.   Þeir sem sögðu já voru 83,7%,  nei sögðu 14,3%, en 2% skiluðu auðu.  Gildistími þessa nýja samnings er frá 1. mars 2014 til 31. ágúst 2015.  Meginbreytingin felst í upptöku nýrrar launatöflu. Desemberuppbót á árinu 2014  verður kr. 87.500, orlofsuppbót árið 2014 verður kr. 41.200 og árið 2015 kr. 42.000.

Á samningstímanum verða skoðaðir möguleikar Sambandsins til þátttöku í Starfsþróunarsetri háskólamanna, auk þess sem aðilar munu vinna að endurskoðun starfaskilgreininga og launaröðun. Á niðurstaða að liggja fyrir eigi síðar en 1. mars 2015 og liggja til grundvallar næstu kjaraviðræðum.    Samningurinn og ný launatafla verða birt hér á vefsíðu KVH undir “Kaup og kjör”.

Share This