Aðalfundur Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) verður haldinn fimmtudaginn 23. mars 2017, kl. 12:00 – 13:30, í aðalfundarsal BHM að Borgartúni 6, 3. hæð.

Dagskrá:

  • Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári
  • Reikningar félagsins
  • Skýrslur og tillögur nefnda
  • Tillögur félagsstjórnar
  • Kosning í embætti stjórnar og önnur trúnaðarstörf
  • Lagabreytingar
  • Ákvörðun félagsgjalda
  • Fjárhagsáætlun og fjárfestingastefna félagsins
  • Önnur mál

Kosningar: Á þessum aðalfundi skal skv. lögum félagsins kjósa formann og tvo aðra aðalmenn, þ.e. gjaldkera og einn meðstjórnanda. Að auki skal kjósa þrjá varamenn í stjórn og tvo skoðunarmenn reikninga. Eftirtaldir hafa gefið kost á sér með lögmætum fyrirvara til þessara embætta:

  • Til formanns: Birgir Guðjónsson.
  • Til gjaldkera: Ársæll Baldursson.
  • Til eins sætis meðstjórnanda: Einar Geir Jónsson og Stefán Þór Björnsson.
  • Til aðalmanns: Helga S. Sigurðardóttir
  • Til varastjórnar: Hjálmar Kjartansson og Sæmundur Árni Hermannsson.
  • Til skoðunarmanna reikninga: Halla S. Sigurðardóttir og Jóngeir Hlinason.

Lagabreytingar: Stjórn KVH leggur fram eftirtaldar tillögur til lagabreytinga:

  1. Að í annarri málsgrein 9.gr laga um aðalfund, þar sem fjallað er um hvaða mál skuli tekin til meðferðar á aðalfundi og nánar hvernig haga skuli kosningu til embætta, þar standi:

Kosning í embætti stjórnar og önnur trúnaðarstörf:

  • Kosning formanns annað hvert ár
  • Kosning ritara til 2ja ára
  • Kosning gjaldkera til 2ja ára
  • Kosning meðstjórnanda til 2ja ára
  • Kosning 3ja varamanna til eins árs
  • Kosning 2ja skoðunarmanna reikninga til 2ja ára

   2. Að fjórða málsgrein 9.gr. laga um aðalfund verði þannig:

“Framboð/tilnefning til embætta á aðalfundi skulu tilkynnt stjórn fyrir 1. mars næstan á undan aðalfundardegi. Tilkynningu skal fylgja staðfesting þess sem býður sig fram / er tilnefndur á því að hann gefi kost á sér til embættisins. Einungis er hægt að bjóða sig fram til eins embættis stjórnarmanns á aðalfundi. Kosningar til trúnaðarstarfa og atkvæðagreiðsla um lagabreytingar skulu vera leynilegar. Einungis þeir félagsmenn sem mæta á fundinn hafa atkvæðisrétt.”

Share This