Aðalfundur Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) verður haldinn föstudaginn 31. mars 2023, kl. 12:00 – 13:30, í aðalfundarsal BHM að Borgartúni 6, 4. hæð.

Dagskrá:

  • Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári
  • Reikningar félagsins
  • Skýrslur og tillögur nefnda
  • Tillögur félagsstjórnar
  • Kosning í embætti stjórnar og önnur trúnaðarstörf
  • Lagabreytingar
  • Ákvörðun félagsgjalda
  • Fjárhagsáætlun og fjárfestingastefna félagsins
  • Önnur mál

 

Kosningar: Á þessum aðalfundi skal skv. lögum félagsins kjósa um embætti forrmanns, gjalddkera og meðstjórnenda til tveggja ára auk þriggja varamanna til eins árs.  Einnig þarf að  kjósa skoðunarmenn reikninga. Eftirtaldir hafa gefið kost á sér með lögmætum fyrirvara til eftirfarandi embætta:

  • Til formanns: Stefán Þór Björnsson
  • Til gjaldkera: Helga S. Sigurðardóttir
  • Til meðstjórnenda: Guðjón Hlynur Guðmundsson

 

Stjórn félagsins mun leggja lagabreytingatillögu fram sem sjá má hér.

Share This