HVER GÆTIR ÞINNA HAGSMUNA?

HVER GÆTIR ÞINNA HAGSMUNA?

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) er stéttarfélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Félagið sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði.  Það vinnur að bættum kjörum félagsmanna, gætir réttinda þeirra og er óháð starfsvettvangi, vinnuveitanda eða ráðningarformi.

Alls eru greiðandi félagsmenn nú tæplega 2.000. Um 55% starfar á almennum vinnumarkaði en 45% hjá hinu opinbera.

KVH hefur það að markmiði að félagsmenn þess njóti bestu mögulegrar þjónustu og hagsmunagæslu á hverjum tíma. KVH er aðili að Bandalagi háskólamanna.

Aðsetur KVH og BHM er að Borgartúni 6, Reykjavík.

Á skrifstofu KVH er svarað í síma og veitt ráðgjöf er hér segir:

Mánudaga – fimmtudaga 13:00-16:00.

Föstudaga 9:00-12:00.

Fyrir almennar heimsóknir er hægt að bóka ráðgjöf og fjarfundi í síma 595-5140 eða: kvh@bhm.is

Efst á baugi


Til félagsmanna á Akureyri og nágrenni

Að gefnu tilefni minnum við á að BHM stendur fyrir fræðslu og að þessu sinni eru nokkur sæti laus á námskeið um þjónandi forystu – hugmyndafræði og hagnýting, sem er haldið á Akureyri 2. desember n.k.

  • Staðsetning: AKUREYRI – Lionssalnum að Skipagötu 14, sama húsi og veitingarstaðurinn Strikið
  • Tími: kl. 09:00 – 12:00
  • Skráning hér

 

Félagsmenn eru hvattir til að fylgjast með heimasíðu félagsins, www.kjarafelagvh.is, jafnt sem láta vita ef breytingar verða á netföngum.

 

Morgunverðarfundur BHM

Þann 18. nóvember næstkomandi mun Bandalag háskólamanna halda morgunverðarfund um veikinda vinnu starfsmanna.

Á fundinum flytja erindi þau Guðlaug Kristjánsdóttir formaður BHM, Jónína Waagfjörð frá VIRK og Ólafur Arnar Þórðarson starfsmannastjóri Hagstofunnar fyrir hönd Félags mannauðsstjóra ríkisins.

Staðsetning: Hilton Reykjavík Nordica

Tími: kl. 9:00 – 10:30

Dagskrá verður send út síðar.

Takið tímann frá!

Morgunverðarfundur

 

 

Námsmannaaðild KVH

KVH hefur gert samstarfssamninga við fimm námsmannafélög viðskipta- og hagfræðinga.  Þ.e. við Háskóla Íslands (Mágus og Ökonomia), við Háskólann í Reykjavík (Markaðsráð), við Háskólann á Akureyri (Reki) og við Háskólann á Bifröst (Merkúr).

Námsmenn í viðskiptafræði eða hagfræði á háskólastigi, sem lokið hafa a.m.k. 60 einingum (ECTS) geta sótt um námsmannaaðild að KVH. Slík aðild felur m.a. í sér aðgang að leiðbeiningum félagsins er snerta störf og launakjör. Þá mun KVH bjóða námsmönnum, sem eiga aðild að félaginu, námskeið til undirbúnings því að sækja um störf og hefja fulla þátttöku á vinnumarkaði, þegar námi lýkur.

Námsmenn greiða ekki gjöld til félagsins meðan þeir eru í námi nema þeir þiggi laun á tímabilinu og séu jafnframt í störfum þar sem menntun þeirra nýtist. Námsmannaaðild getur varað allt að fjórum árum.

Fréttabréf KVH: niðurstöður kjarakönnunar KVH 2014

Nú í september kom út 5. tbl. Fréttabréfs KVH og var það sent á netföng allra félagsmanna. Efnisatriði þess voru niðurstöður úr kjarakönnun KVH/BHM sem framkvæmd var í mars-apríl síðast liðnum. Gerð var grein fyrir helstu niðurstöðum og tölum, jafnt sem bent á ýmsa tölfræði. Hafi einhverjir félagsmenn ekki fengið Fréttabréfið sent á rétt netfang, eru þeir beðnir að hafa samband við skrifstofu KVH eða senda ábendingu á kvh@bhm.is

Forsíða

Félagsaðild

Í boði er meðal annars:

  • Fæðingarstyrkir og sjúkradagpeningar
  • Starfs- og endurmenntunarstyrkir
  • Sumarbústaðir og orlofshúsnæði, innanlands og erlendis

Námsmannaaðild

Námsmenn í viðskiptafræði eða hagfræði á háskólastigi, sem lokið hafa a.m.k. 60 einingum (ECTS) geta sótt um námsmannaaðild að KVH (NKVH). Slík aðild felur m.a. í sér:

  • Aðgang að upplýsingum og leiðbeiningum félagsins er snerta störf og kjör á vinnumarkaði
  • Aðstoð við gerð ráðningarsamninga
  • Aðgang að námskeiðum/málstofum KVH á ári hverju. Efni námskeiðanna eru fjölbreytt og höfða til námsmanna
  • Gjöf frá KVH þegar að námi lýkur