HVER GÆTIR ÞINNA HAGSMUNA?

HVER GÆTIR ÞINNA HAGSMUNA?

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) er stéttarfélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Félagið sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði.  Það vinnur að bættum kjörum félagsmanna, gætir réttinda þeirra og er óháð starfsvettvangi, vinnuveitanda eða ráðningarformi.

Alls eru greiðandi félagsmenn nú tæplega 2.000. Um 55% starfar á almennum vinnumarkaði en 45% hjá hinu opinbera.

KVH hefur það að markmiði að félagsmenn þess njóti bestu mögulegrar þjónustu og hagsmunagæslu á hverjum tíma. KVH er aðili að Bandalagi háskólamanna.

Aðsetur KVH og BHM er að Borgartúni 6, Reykjavík.

Á skrifstofu KVH er svarað í síma og veitt ráðgjöf er hér segir:

Mánudaga – fimmtudaga 13:00-16:00.

Föstudaga 9:00-12:00.

Fyrir almennar heimsóknir er hægt að bóka ráðgjöf og fjarfundi í síma 595-5140 eða: kvh@bhm.is

Efst á baugi


Aðalfundur KVH

Aðalfundur KVH verður haldinn 19. mars n.k.  Dagskrá fundarins verður nánar auglýst síðar. Vakin er athygli á að skv. nýjum lögum KVH þarf framboð til embætta á aðalfundi að hafa borist stjórn fyrir 1. mars n.k. Tilkynning um framboð ásamt staðfestingu þess sem býður sig fram skal senda framkvæmdastjóra KVH fyrir áðurnefnda dagsetningu. (Sjá nánar um lög KVH á vefsíðu félagsins).

Greitt úr Vísindasjóði KVH

Greitt var úr Vísindasjóði KVH í dag til þeirra félagsmanna sem aðild eiga að honum (sjá nánar um Vísindasjóðinn hér á þessari vefsíðu KVH).   Réttar upplýsingar um bankareikninga vantar frá fáeinum einstaklingum og verður haft samband við þá til að afla þeirra gagna.

Orlofssjóður BHM

Sjóðfélagar OBHM athugið

Lokafrestur til  að senda inn umsókn um orlofshús erlendis rennur út  á miðnætti 12. febrúar.

Til að sækja um er farið inn á bókunarvefinn. – Það þarf að velja umsóknir inni á bókunarvefnum til að senda umsókn.

Minnt er á póstlista Orlofssjóðs BHM. Þar er hægt að fá sendar upplýsingar um lausa bústaði og íbúðir ásamt öðrum upplýsingum er tengjast sjóðnum.

BHM – fræðslan

KVH vill minna félagsmenn sína á BHM-fræðsluna

Hægt er að skoða þau námskeið sem verða í boði á heimasíðu BHM

Fræðslan hefst næstkomandi þriðjudag, þann 3. febrúar kl.9.00 á Hilton Nordica Reykjavík. Mun hún Vilborg Arna “pólfari” koma og fjalla um hversu langt við getum náð með jákvæðni, áræðni og hugrekki að leiðarljósi. Hægt er að skrá sig hér

Þau námskeið og erindi sem verða í boði eru opin fyrir alla félagsmenn BHM þeim að kostnaðarlausu.

Hvetjum við félagsmenn KVH eindregið til að kynna sér vel og nýta það sem er í boði.

Forsíða

Félagsaðild

Í boði er meðal annars:

  • Fæðingarstyrkir og sjúkradagpeningar
  • Starfs- og endurmenntunarstyrkir
  • Sumarbústaðir og orlofshúsnæði, innanlands og erlendis

Námsmannaaðild

Námsmenn í viðskiptafræði eða hagfræði á háskólastigi, sem lokið hafa a.m.k. 60 einingum (ECTS) geta sótt um námsmannaaðild að KVH (NKVH). Slík aðild felur m.a. í sér:

  • Aðgang að upplýsingum og leiðbeiningum félagsins er snerta störf og kjör á vinnumarkaði
  • Aðstoð við gerð ráðningarsamninga
  • Aðgang að námskeiðum/málstofum KVH á ári hverju. Efni námskeiðanna eru fjölbreytt og höfða til námsmanna
  • Gjöf frá KVH þegar að námi lýkur