HVER GÆTIR ÞINNA HAGSMUNA?

HVER GÆTIR ÞINNA HAGSMUNA?

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) er stéttarfélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Félagið sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði.  Það vinnur að bættum kjörum félagsmanna, gætir réttinda þeirra og er óháð starfsvettvangi, vinnuveitanda eða ráðningarformi.

Alls eru greiðandi félagsmenn nú tæplega 2.000. Um 55% starfar á almennum vinnumarkaði en 45% hjá hinu opinbera.

KVH hefur það að markmiði að félagsmenn þess njóti bestu mögulegrar þjónustu og hagsmunagæslu á hverjum tíma. KVH er aðili að Bandalagi háskólamanna.

Aðsetur KVH og BHM er að Borgartúni 6, Reykjavík.

Á skrifstofu KVH er svarað í síma og veitt ráðgjöf er hér segir:

Mánudaga – fimmtudaga 13:00-16:00.

Föstudaga 9:00-12:00.

Fyrir almennar heimsóknir er hægt að bóka ráðgjöf og fjarfundi í síma 595-5140 eða: kvh@bhm.is

Efst á baugi


Orlofssjóður BHM

KVH vill minna félagsmenn á að umsóknir til að sækja um orlofskosti fyrir tíambilið 10. júní – 19. ágúst 2016 verða að berast fyrir miðnætti þann 31. mars.
Jafnframt að hægt er að bóka tímabilin frá 3. til 10. júní og 19. til 26. ágúst 2016 frá og með 22. apríl kl. 9. Ekki þarf að sækja um þessi tímabil heldur gildir reglan fyrstur bókar fyrstur fær. Nýja húsið í Hálöndum þarf ekki að sækja um, það fer á vefinn 22. apríl kl. 9.

Sótt er um á bókunarvef OBHM – þar er einnig hægt að skrá sig á póstlista Orlofssjóðsins.

Aðalfundur KVH

Aðalfundur Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) verður haldinn föstudaginn 18. mars 2016, kl. 12:00 – 14:00, í aðalfundarsal BHM að Borgartúni 6, 3. hæð.

Dagskrá:

  • Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári
  • Reikningar félagsins
  • Skýrslur og tillögur nefnda
  • Tillögur félagsstjórnar
  • Kosning í embætti stjórnar og önnur trúnaðarstörf
  • Lagabreytingar
  • Ákvörðun félagsgjalda
  • Fjárhagsáætlun og fjárfestingastefna félagsins
  • Önnur mál

Samkvæmt lögum félagsins skulu með aðalfundarboði fylgja upplýsingar um tilnefningar/framboð til embætta félagsins.  Á þessum aðalfundi skal kjósa tvo aðalmenn í stjórn til næstu tveggja ára.  Eftirtaldir hafa gefið kost á sér með lögmætum fyrirvara  til þessara embætta:  Guðfinnur Þór Newman, Helga S. Sigurðardóttir og Ragnheiður Ragnarsdóttir.

Þá skulu kosnir þrír í varastjórn til eins árs.  Eftirtaldir hafa gefið kost á sér með lögmætum fyrirvara: Hjálmar Kjartansson og Sæmundur Árni Hermannsson.

Hádegisverðarfundur

Ert þú Örugg/ur í vinnunni? Kynbundin og kynferðisleg áreitni og ofbeldi á vinnustöðum

BHM, Alþýðusamband Íslands, BSRB, Kennarasamband Íslands, Jafnréttisstofa og Jafnréttisráð efna til hádegisverðarfundar þar sem fjallað verður um kynbundna og kynferðislega áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.

Hvar og hvenær: Hvammur, Grand Hótel Reykjavík kl. 11.45 til 13.00 þriðjudaginn 8. mars.

Boðið verður upp á hádegisverð og kostar hann 2.500 krónur.

  • Fundarstjóri verður Laufey E. Gissurardóttir, formaður Þroskaþjálfafélags Íslands.
  • Kynbundin og kynferðisleg áreitni á vinnustað – Sonja Ýr Þorbergsdóttir, lögfræðingur BSRB.
  • Kynbundið vald og vinnumarkaðurinn – Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands.
  • Er kynferðisleg áreitni óhjákvæmileg? – Finnborg Salome Steinþórsdóttir, doktorsnemi í kynjafræði við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.

 

 

Forsíða

Félagsaðild

Í boði er meðal annars:

  • Fæðingarstyrkir og sjúkradagpeningar
  • Starfs- og endurmenntunarstyrkir
  • Sumarbústaðir og orlofshúsnæði, innanlands og erlendis

Námsmannaaðild

Námsmenn í viðskiptafræði eða hagfræði á háskólastigi, sem lokið hafa a.m.k. 60 einingum (ECTS) geta sótt um námsmannaaðild að KVH (NKVH). Slík aðild felur m.a. í sér:

  • Aðgang að upplýsingum og leiðbeiningum félagsins er snerta störf og kjör á vinnumarkaði
  • Aðstoð við gerð ráðningarsamninga
  • Aðgang að námskeiðum/málstofum KVH á ári hverju. Efni námskeiðanna eru fjölbreytt og höfða til námsmanna
  • Gjöf frá KVH þegar að námi lýkur