HVER GÆTIR ÞINNA HAGSMUNA?

HVER GÆTIR ÞINNA HAGSMUNA?

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) er stéttarfélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Félagið sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði.  Það vinnur að bættum kjörum félagsmanna, gætir réttinda þeirra og er óháð starfsvettvangi, vinnuveitanda eða ráðningarformi.

Alls eru greiðandi félagsmenn nú tæplega 2.000. Um 55% starfar á almennum vinnumarkaði en 45% hjá hinu opinbera.

KVH hefur það að markmiði að félagsmenn þess njóti bestu mögulegrar þjónustu og hagsmunagæslu á hverjum tíma. KVH er aðili að Bandalagi háskólamanna.

Aðsetur KVH og BHM er að Borgartúni 6, Reykjavík.

Á skrifstofu KVH er svarað í síma og veitt ráðgjöf er hér segir:

Mánudaga – fimmtudaga 13:00-16:00.

Föstudaga 9:00-12:00.

Fyrir almennar heimsóknir er hægt að bóka ráðgjöf og fjarfundi í síma 595-5140 eða: kvh@bhm.is

Efst á baugi


Námskeið á döfinni hjá BHM

Inni á lokuðum Námskeiðsvef BHM er nú hægt að horfa á Starfsmannasamtalið – hlið stjórnenda með Gylfa Dalmann. Fyrirlesturinn er um klukkutími og verður aðgengilegur til og með mánudeginum 25. október.

Fyrirlesturinn Starfsmannasamtalið – hlið starfsmanna heldur Gylfi Dalmann í dag, miðvikudaginn 20. október, og upptaka verður aðgengileg á lokaða vefnum fram til miðvikudagins 27. október.

 

Smelltu hér til að skrá þig inn á Námskeiðasíðu BHM – við minnum á að þar eru fullt af námskeiðum og fróðleiks auk efnis fyrir Trúnaðarmenn.

Ef þú hefur ekki skráð þig inn á Námskeiðasíðuna áður þarftu að stofna aðgang, smelltu hér til að gera það.

Smelltu hér ef þú vilt skoða hvaða námskeið eru framundan á fræðsludagskrá BHM.

 

Næst á fræðsludagskránni eru eftirfarandi námskeið:

Smelltu hér til að taka sjálfsprófið um hlutdrægni

Smelltu hér til að skrá þig á fyrirlesturinn.

 

 

Smelltu hér til að skrá þig á námskeið í Vinnuvernd 101

Starfsfólk á ekki að þurfa að eyða frídögum í sóttkví

BHM, ASÍ, BSRB, Fíh, KÍ og LÍ hafa sent sameiginlegt erindi á kjara- og mannauðssýslu ríkisins vegna réttarstöðu starfsfólks sem gert er að sæta sóttkví í orlofi sínu.

Borið hefur á því að ríkisstofnanir neiti að breyta orlofsskráningu hjá starfsfólki hafi það þurft að sæta sóttkví samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda á meðan það er í sumarfríi. Fjölmörg dæmi eru um að ríkisstofnanir hafi svarað starfsfólki sínu þannig að umræddur tími í sóttkví teljist til orlofs, óháð því hvort viðkomandi hafi tilkynnt um sóttkví eður ei, líkt og ber að gera vegna veikinda í orlofi.

Mál sem þessi eru í síauknum mæli að valda starfsfólki og stéttarfélögum erfiðleikum vegna óskýrra skilaboða og síbreytilegra reglna ríkisstofnana.

BHM, ASÍ, BSRB, Félag Íslenskra hjúkrunarfræðinga, Kennarasamband Íslands og Læknafélag Íslands telja þessa túlkun hvorki samræmast lögum né ákvæðum kjarasamninga. Er það mat okkar að við þessar aðstæður eigi starfsfólk rétt á að fresta orlofstöku sinni. Einstaklingur í sóttkví er meðhöndlaður líkt og hann sé sýktur þar til annað kemur í ljós. Margar íþyngjandi takmarkanir eru á einstaklingum sem sæta sóttkví sem jafna má við veikindi. Sem dæmi er bannað að umgangast annað fólk, nota almenningssamgöngur, vera í fjölmenni og fleira. Þá getur brot á sóttkví varðað refsingu. Það gefur því augaleið að starfsmaður getur tæplega notið þess að vera í orlofi.

Óskað er eftir formlegri afstöðu og viðbrögðum KMR til málsins. Félögin vilja reyna að ná farsælli niðurstöðu sem fyrst, annars getur reynst nauðugur kostur einn að fá úr álitaefninu skorið fyrir dómstólum.

Hér má lesa erindi BHM, ASÍ, BSRB, Fíh, KÍ og LÍ í heild sinni.

Að gefnu tilefni

Síðastliðin ár hefur mikill fjöldi félagsmanna haft samband við skrifstofu KVH vegna greiðsluseðla í einkabanka sem þeir töldu vera frá sínu stéttarfélagi. Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga vill árétta að það sendir ekki út greiðsluseðla í einkabanka félagsmanna. Félagsgjald KVH er 0,6% af heildarlaunum og er skilað inn af vinnuveitanda fyrir hönd félagsmanns. Vinnuveitandi greiðir í lögbundna sjóði BHM og einnig í valkvæða sjóði BHM sem samið hefur verið um í ráðningarsamningi. Ekki er um aðrar greiðslur að ræða til KVH og sjóða BHM.

Næstu námskeið á vegum BHM

 

Öll námskeið og fyrirlestrar á vegum BHM eru félagsmönnum aðildarfélaga BHM að kostnaðarlausu.

Smelltu hér til að skrá þig og fá áminningu um viðburðinn.

Kynningin fer fram á Teams fundi, hér er hlekkurinn á hann: Click here to join the meeting

 

 

Starfsmannasamtalið frá hlið stjórnenda, smelltu hér til að fá nánari upplýsingar og skrá þig.

Starfsmannasamtalið frá hlið starfsmanna, smelltu hér til að fá nánari upplýsingar og skrá þig.

Fyrirlestrarnir verða teknir upp og hægt að nálgast þá á lokaðri Námskeiðasíðu BHM í viku í kjölfar hvors um sig.

Forsíða

Félagsaðild

Í boði er meðal annars:

  • Fæðingarstyrkir og sjúkradagpeningar
  • Starfs- og endurmenntunarstyrkir
  • Sumarbústaðir og orlofshúsnæði, innanlands og erlendis

Námsmannaaðild

Námsmenn í viðskiptafræði eða hagfræði á háskólastigi, sem lokið hafa a.m.k. 60 einingum (ECTS) geta sótt um námsmannaaðild að KVH (NKVH). Slík aðild felur m.a. í sér:

  • Aðgang að upplýsingum og leiðbeiningum félagsins er snerta störf og kjör á vinnumarkaði
  • Aðstoð við gerð ráðningarsamninga
  • Aðgang að námskeiðum/málstofum KVH á ári hverju. Efni námskeiðanna eru fjölbreytt og höfða til námsmanna
  • Gjöf frá KVH þegar að námi lýkur